Fræðsla um netöryggi- símalaus apríl
Mánudaginn 15. apríl mun Skúli B. Geirdal fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd halda fræðsluerindi fyrir nemendur í 4.-10. bekk á skólatíma og fyrir foreldra og forráðamenn kl.19:30.
Fræðsluerindin eru:
Netumferðarskólinn -4. - 7. bekkur
Ef þú borgar ekki fyrir vöruna þá ert þú varan - 8.- 10. bekkur
...meiraSkáksveit Setbergsskóla sigraði á skákmóti Hafnarfjarðar
Skáksveit Setbergsskóla sigraði á skákmóti Hafnarfjarðar. Allir leikmenn sveitarinnar fóru ósigraðir í gegnum mótið og fengu viðurnefnið Hinir Ósigruðu.
Í sveitinni voru þeir Vilhelm Henrý, Brynjar Þór, Ólafur Breki, Sveinn Aron, Dagur Fannar og Camilo Vasques.
Við óskum þeim til hamingju með sigurinn!
Þemadagar í Setbergsskóla
Í dag var foreldrum boðið til að koma og skoða afrakstur vinnu á þemadögunum sem fram hafa farið í vikunni. Mikill fjöldi fólks lagði leið sína til okkar og var afskaplega gaman að sjá ykkur öll.
Hér eru nokkrar myndir af verkefnum nemenda.https://www.facebook.com/Setbergsskoli
Páskafrí er í skólanum í næstu viku. Við mætum hress og kát kl 8.30 þriðjudaginn 2.apríl.
Gleðilega páska!
Starfsfólk Setbergsskóla
...meiraSímafrí í apríl 2024 í grunnskólum Hafnarfjarðar
Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að símafrí verði í öllum grunnskólum bæjarins í apríl 2024. Í því felst að ekki verði heimilt að vera með síma uppi við á skólatíma en hingað til hafa nemendur í unglingadeild fengið að nota símann sinn á ákveðnum svæðum í frímínútum og því snertir símafríið óneitanlega mest nemendur unglingadeildar. Fræðsluráð veitir fjármagni í þetta verkefni og munum við nýta það til kaupa á ýmissi afþreyingu fyrir nemendur í samráði við þau. Fundað hefur verið með fulltrúum í nemendafélagi skólans til undirbúnings þessa verkefnis og kennarar rætt við sinn nemendahóp.
...meiraSetbergsskóli sigrar í Stóru upplestrarkeppninni 2024
Auðunn Sölvi Hugason, Setbergsskóla, sigraði í Stóru upplestarkeppninni 2024 sem haldin var í Víðistaðakirkju mánudaginn 19. mars. Axel Høj Madsson, Áslandsskóla, var í öðru sæti og Gerður Lind Pálmadóttir, Lækjarskóla, í því þriðja. Átján nemendurnir tóku við viðurkenningu úr hendi Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.
...meiraVorönn hafin og LÆK verkefnið heldur áfram
Nýtt skólaár hófst með krafti í síðustu viku og greinilegt að nemendur og starfsfólk hefur notið hátíðanna vel.
Í dag kom Gunnar Helgason og hitti á nemendur í unglingadeild með LÆK verkefnið sem Hafnarfjarðarbær setti í gang í haust. Í þetta skiptið kom Gunnar til að fá endurgjöf á LÆK-smásögurnar og einnig til að fá viðbótar hugmyndir frá nemendum til að fylla betur út í sögurammana. En eins og flestum er kunnugt byggja smásögurnar á hugmyndum frá nemendum grunnskólanna.
...meiraHátíðarkveðja
Starfsfólk Setbergsskóla óskar ykkar gleðilegrar hátíðar. Við þökkum gott samstarf á liðnu ári.
Jólafatadagur 14. desember
Fimmtudaginn 14. desember er hátíðarmatur í Setbergsskóla. Það væri gaman ef nemendur og starfsfólk komi í einhverjum jólalegum fatnaði, t.d. með jólahúfu, í jólapeysu, einhverju rauðu eða jólalegu.
Áherslur í skólastarfi
Vinaliðaverkefni
Setbergsskóli hóf þátttöku í Vinaliðaverkefninu haustið 2020 og hefur það vakið mikla lukku í skólanum. Foreldrafélag Setbergsskóla gaf nemendum skólans verkefnið við útskrift 10. bekkjar í vor og erum við mjög þakklát foreldrum fyrir að styðja við okkur við innleiðingu þess.
Einelti
Við Setbergsskóla starfar eineltisteymi sem vinnur eftir áætlun gegn einelti sem skólinn hefur sett fram.
...meiraSMT-skólafærni
Setbergsskóli er SMT skóli og er það eitt af stærstu þróunarverkefnum skólans. SMT er fyrirbyggjandi agakerfi sem felur í sér aðferðir til þess að stuðla að bestu mögulegu aðlögun allra nemenda skólans.
...meira
Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is