Sigmundur Davíð segir Panamaskjölin hafa verið sérstakt „hit-job“

Fyrrverandi forsætisráðherra segir það liggja fyrir að vogunarsjóðsstjórinn George Soros standi að baki opinberun Panamaskjalanna. Argentína og Ísland, sem bæði hafa háð rimmur við vogunarsjóði, hafi fengið sérstaka meðferð í umfjöllun.

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að stjórn­mála­menn í tveimur löndum hafi fengið sér­staka með­ferð þegar unnið var úr upp­lýs­ingum í Panama­skjöl­un­um. „Í báðum til­vikum var sér­stakt „hit-job" und­ir­búið mán­uðum sam­an. Það var í Argent­ínu og á Íslandi. Hvað eiga þessi tvö lönd sam­eig­in­legt? Hverjum hafa þau boðið byrg­inn?“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslur sem Sig­mundur Davíð hefur sett á Face­book. Til­efnið er umfjöllun um fyrri ummæli hans um aðkomu alþjóð­lega fjár­fest­is­ins George Soros að leka Pana­ma-skjal­anna. Sig­mundur Davíð segir að það sé óþarfi að kalla aðkomu Soros sam­sær­is­kenn­ingu þar sem hún liggi fyr­ir. Það sem Argent­ína og Ísland eiga sam­eig­in­legt er að hafa tek­ist á við alþjóð­lega vog­un­ar­sjóði sem hafa hagn­ast á efna­hags­á­föllum ríkj­anna tveggja.



Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra eftir að upp­ljóstrað var um það í umfjöllun um Panama­skjölin að hann hafi átt félagið Wintris ásamt eig­in­konu sinni. Það félag er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um, var kröfu­hafi í bú föllnu íslensku bank­anna með kröfur upp á rúm­lega 500 millj­ónir króna og var ekki til­greint í hags­muna­skrán­ingu Sig­mundar Dav­íðs. Þegar Sig­mundur Davíð var spurður um Wintris í sjón­varps­við­tali þá sagði hann ósatt um til­urð félags­ins og tengsl sín við það.

Sig­mundur Davíð hefur áður haldið því fram að sam­særi hafi verið um að fella hann af stalli. Sú skýr­ing er þannig að erlendir vog­un­­ar­­sjóðir sem áttu kröfur í bú föllnu bank­anna á Íslandi, og sér­­stak­­lega vog­un­­ar­­sjóðs­­stjór­inn George Soros, hafi ákveðið að losa sig við Sig­­mund Dav­­íð.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð sagði í við­tali við Útvap Sögu í júlí­lok 2016 að árás gegn honum hefði verið „und­ir­­búin í sjö mán­uði, í nokkrum löndum og beitt þessum gögn­um, sem að [George] Soros vog­un­­ar­­sjóð­s­­kóngur hafði keypt og grein­i­­lega gat notað að vild.“

Sig­­mundur Davíð er þar lík­ast til að vísa í að George Soros hefur gefið fé til að styrkja starf­­semi ICIJ, alþjóða­­sam­­taka rann­­sókn­­ar­­blaða­­manna sem unnu að birt­ingu Pana­ma-skjal­anna. Sú pen­inga­­gjöf Open Soci­ety Founda­tions - sjóðs sem Soros stofn­aði og stýrir - er hennar m.a. getið á heima­­síðu ICIJ og engin leynd er yfir henni. Upp­lýs­ingar um George Soros eru í Panama­skjöl­un­um. Í þeim kom fram að hann faldi fé og fjár­magn­aði verk­efni úr fjölda aflands­­fé­laga sem eiga heim­il­is­­festi á Bresku Jóm­frú­­areyj­un­um, á Bermúda og í Panama.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í ágúst 2016 sagði Anna Sig­ur­laug Páls­dótt­ir, eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs að umfjöllun um Panama­skjölin á Íslandi hafi bara snú­ist um að fella Sig­mund Davíð sem for­sæt­is­ráð­herra. „Það sáu auð­vitað margir sem vildu ná sér niður á mann­inum sem hafði þvæl­st, svo eftir var tek­ið, fyrir kröf­u­höfum bank­anna og leyst úr stórum málum sem aðrir stjórn­­­­­mála­­­menn höfðu gef­ist upp á að fást við. Miðað við það hversu ljótur leikur þetta var og hvernig þetta teygði sig út fyrir land­­­stein­ana þá kæmi mér ekki á óvart þó ein­hverjir úr hópi kröf­u­haf­anna hafi ýtt undir þessa umfjöllun og séð sér veru­­­legan hag í því að velta for­­­sæt­is­ráð­herra lands­ins úr sessi.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None