Nýjasta skráða opinbera viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands: 29.12.2006
Dag:
Mán:
Ár:
Gjaldmiðill |
Mynt |
Kaup |
Sala |
Mið |
Bandaríkjadalur |
USD |
71,66 |
72 |
71,83 |
Sterlingspund |
GBP |
140,64 |
141,32 |
140,98 |
Kanadadalur |
CAD |
61,71 |
62,07 |
61,89 |
Dönsk króna |
DKK |
12,65 |
12,724 |
12,687 |
Norsk króna |
NOK |
11,419 |
11,487 |
11,453 |
Sænsk króna |
SEK |
10,415 |
10,477 |
10,446 |
Svissneskur franki |
CHF |
58,71 |
59,03 |
58,87 |
Japanskt jen |
JPY |
0,6025 |
0,6061 |
0,6043 |
SDR |
XDR |
107,72 |
108,36 |
108,04 |
Evra |
EUR |
94,35 |
94,87 |
94,61 |
Vísitala meðalgengis - vöruskiptavog víð |
|
|
|
120,5251 |
Vísitala meðalgengis - vöruskiptavog þröng |
|
|
|
120,6688 |
Vísitala meðalgengis - viðskiptavog víð |
|
|
|
119,6023 |
Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng |
|
|
|
119,7071 |
Gengisvísitala |
TWI |
|
|
129,1819 |
Nýjar upplýsingar um gengisvogir og gengisvísitölur (tilvísun á aðra síðu).
Gengi annarra gjaldmiðla má finna á ýmsum vefsíðum, t.d oanda.com. Seðlabanki Íslands ber enga ábyrgð á upplýsingum sem er að finna á slíkum vefsíðum eða notkun aðila á þeim auk þess sem minnt er á almennan fyrirvara um áreiðanleika upplýsinga á vefnum.
Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á gjaldeyrismarkaði sem er opinn á milli kl. 9:15 og 16:00 hvern virkan dag. Einu sinni á dag skráir Seðlabanki Íslands opinbert viðmiðunargengi krónunnar gagnvart ofangreindum erlendum myntum til viðmiðunar í opinberum samningum, dómsmálum og öðrum samningum milli aðila þegar önnur gengisviðmiðun er ekki sérstaklega tiltekin, sbr. 19. gr. laga nr. 36/2001um Seðlabankann, og um leið er skráð opinber gengisskráningarvísitala. Þetta er gert á milli kl. 10:45 og 11:00 á hverjum morgni sem skipulegir gjaldeyrismarkaðir eru almennt starfandi. Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn tímabundið fellt niður skráningu á gengi krónunnar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um nýjustu gengisskráninguna á xml-formi með því að slá inn /?PageID=289. Einnig er hægt að ná í upplýsingar um gengisskráningu ákveðins dags á xml-formi. Dæmi: Notandi sem vill fá upplýsingar á xml-formi um gengisskráninguna 25. janúar 2001 slær inn eftirfarandi: /?PageID=289&dagur=25.01.2001
Hér eru nýjustu upplýsingar:
Uppfærsla gengisvoga og nýjar gengisvísitölur (tilvísun á nýja síðu 1. desember 2006)
Hér er texti sem átti við fram að 1. desember 2006:
Endurskoðun á gengisskráningarvog krónunnar
Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvog krónunnar í ljósi utanríkisviðskipta á árinu 2004. Slík endurskoðun fór síðast fram í júlí 2004. Meðfylgjandi tafla sýnir nýju vogina og breytingar frá fyrri vog. Nýja vogin mun mæla gengisbreytingar frá gengisskráningu 11. júlí 2005 og þar til næsta endurskoðun fer fram.
Gengisskráningarvogin er endurskoðuð árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að hún endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vog eru að vægi Bandaríkjadals eykst um 1,19 prósentur en vægi evru minnkar um 1,23 prósentur. Aukið vægi Bandaríkjadals skýrist að mestu af auknu vægi hans í þjónustuinnflutningi. Minna vægi evrunnar skýrist að stærstum hluta af minna vægi hennar í þjónustuinnflutningi. Sjá meðf. töflu
Til athugunar: Hinn fyrsta júlí 2002 var lögð af formleg opinber skráning Seðlabanka Íslands á gengi gjaldmiðla þeirra landa sem tóku upp evru í ársbyrjun 2002. Í
frétt nr. 22/2002 sem birt var 1. júlí 2002 var frá þessu greint og jafnframt voru birtir reiknistuðlar sem notast skal við þegar reikna þarf út gengi eldri gjaldmiðla út frá gengi evru.