Fréttir

26.02.2013

Fyrsta tréð á Íslandi til að rjúfa 25 metra múrinn

26022013-(2)
26022013-(1)
Á Kirkjubæjarklaustri vex gróskumikill skógur í brekkunum ofan við byggðina. Skógurinn er í einkaeigu en hefur verið í umsjá Skógræktar ríkisins síðan 1964. Gróðursetti heimafólk á Klaustri 60 þús. birkiplöntur í brekkurnar upp úr 1940 og voru sitkagrenitré gróðursett í skjóli birkisins árið 1949. Sitkagrenið hefur vaxið vel i Klausturskóginum og hafa þessi tré síðustu árin verið talin vera þau hæstu á landinu. 

Nýverið mældi skógarvörðurinn á Suðurlandi hæstu trén í skóginum og reyndist eitt þeirra vera 25,2 m á hæð. Er þetta að öllum líkindum fyrsta tré sem rýfur 25 m hæðarmúrinn og það hæsta á landinu. Fjölmörg tré í skóginum hafa vaxið yfir 20 m hæð og eru nokkur þeirra rúmlega 24 m há. Sverasta tréð í skóginum er með um 65 cm þvermál í brjósthæð, en þess ber að geta að klafinn sem notaður til mælinganna er 60 cm og náði ekki um trjástofninn. Það tré er um 23,7 m á hæð og má áætla að trjábolurinn gæti náð 3 rúmmetrum viðar. Er þetta tré því með rúmmálsmestu trjám landsins. 

Trén á Klaustri eru enn í fullum vexti og verður spennandi að fylgjast með vexti þeirra, en þau gætu miðað við núverandi vaxtarhraða náð 30 metra hæð á næstu 10-15 árum.

Meðfylgjandi myndir sýna annars vegar Einar Bjarnason, umsjónamann skógarins, mæla sverasta tréð í skóginum og hins vegar hæstu toppa á sitkagreninu á Klaustri.



Texti og myndir: Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica